Færsluflokkur: Bloggar

Ný síða!!

Erum komin með nýja síðu sem er http://www.aldisaevar.bloggar.is Endilega kíkið ;)

Jæja..

Jæja.. loksins er að koma helgi!! Hlæjandi

Ég og Birgir erum búin að vera að skoða íbúðir á fullu og fundum eina rosalega flotta. Hún er á Mávabrautinni í blokkinni. Í henni eru 3 svefnherbergi, stór stofa, eldhús, baðherbergi með sturtu sem er með nuddi og útvarpi hehe.. svo er líka lítið þvottahús innaf eldhúsinu þar sem er nóg af skápaplássi :) Hún er bara nýkomin á sölu. Við fórum og skoðuðum hana í fyrradag (daginn eftir að hún kom á sölu :)  og leist svo vel á hana að við fengum að skoða hana aftur um kvöldið og drógum pabba með okkur.Svo fórum við niðrá fasteignasölu í hádeginu í gær og gerðum tilboð uppá 9,5 (en það var sett á hana 10,3. Þeir tóku ekki tilboðinu og sögðu að þetta væri uppsett verð og ætluðu ekkert að lækka sig strax. Við sögðum þá bara okei og fórum.

Svo hringdi fasteignasalinn í okkur og sagðist hafa talað við þá og fengið þá til að lækka sig niðrí 10,1 og við ættum bara að koma niðrá fasteignasölu ef við ætluðum að taka því. Við fórum svo niðrá fasteignasölu í kaffinu hans Birgis og hann fyllti allar upplýsingar í tölvuna og svona og svo náði hann ekki að prenta það út.. var eitthvað vesen með prentarann, svo í þokkabót frosnaði svo talvan. Birgir var orðinn seinn í vinnu svo við fórum bara og ætlum að fara aftur niðureftir í dag. Efað íbúðin verður farin þá verður bara að hafa það...

Þannig að þegar að Birgir er búinn að vinna þá förum við niðrá fasteignasölu og göngum frá tilboðinu, förum svo í bankann og sækjum um bankalán og krossleggjum bara putta um að allt gangi upp Glottandi

Svo erum við að fara núna yfir helgina í Þrastarskóg í sumarbústað með mömmu og pabba... rosa stuð Glottandi  Vona bara að það verði gott veður svo það sé hægt að leyfa Sævari að fara í heita pottinn!

Sævar er orðinn rosalega duglegur að labba.. tók 4 skref í gær!!! :) Hann er bara svo óöruggur þegar maður sleppir honum að hann sest alltaf bara niður... Ég gaf honum bara falskt öryggi í gær, lét hann halda á svona hanska sem maður notar til að taka úr ofninum. Ohh hann er svo duglegur strákur. Hann er ekki farinn að standa sjálfur upp, en ég held að það komi bara þegar hann finnur fyrir öryggi að standa einn, en hann er löngu farinn að standa upp við hluti og labba með Brosandi

Svo er hann kominn með nýjan svip þegar hann sýnir hvað hann er sterkur. Áður þá gretti hann sig alltaf eins og hann gat, en núna þá opnar hann munninn og augun alveg rosalega og kreistir hendurnar svo fast að þær hristast hehe... Alveg ROOOOOSALEGA STERKUR!! Hlæjandi

 Æi hann er svo langfallegastur, flottastur og bestur þessi elska Hlæjandi

Ælti maður verði ekki að skella inn einni mynd af honum hérna með Glottandi

 sævar snær töffari

 


Whats your smurf name?

Aldís Ósk -Stingy Smurf

Sævar Snær-Sexy Smurf

 

 

 


Prufa..

Her ætla ég og Sævar að blogga saman ;)

Um bloggið

Heimur Aldísar og Sævars

Höfundur

Aldís Ósk Sævarsdóttir
Aldís Ósk Sævarsdóttir
Ég heiti Aldís Ósk og er 20. Sonur minn heitir Sævar Snær og verður 1 árs 21.júní. Við ætlum að halda þessari síðu saman og sjá hvernig gengur, en hann er líka með síðu á barnalandi.
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...300028_1854
  • Sævar og Aldís
  • Sævar Snær
  • Sævar Snær að skríða ;)

Linkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband